Mojim Lyrics
Mojim Lyrics > Americas singers > Bubbi Morthens > Miscellaneous > Hrognin Eru Að Koma

Bubbi Morthens



Lyrics
Album list

Bubbi Morthens

Hrognin Eru Að Koma

Hrognin eru að koma, gerið kerin klár
hrognin eru að koma, gerið kerin klár.
Setjið dælurnar í samband, takið svo seglin frá
Hrognin eru að koma gerið kerin klár.

Vinnið nógu mikið, peninga munuð þið fá
vinnið nógu mikið, svo verki niður í stórutá.
Það er hagur þeirra að ykkur flökri
þegar hugsun ykkar fer á stjá.
Vinnið nógu mikið og peninga munuð þið fá.

Uppá verbúð blómstrar menningin
komið og þið munuð sjá
slagsmál, ríðingar, fyllirí
Jack London horfa á.
Find more lyrics at ※ Mojim.com
Engin pólitísk slagyrði, Maó myndir veggjum á
þá færðu reisupassann vinur minn
staðnum verður, staðnum verður frystur frá.

Stæltur er skrokkur þinn, djöfull sljór hugurinn
ykkar er jú hagurinn, hagurinn ekki hússins.
Það vita þeir og þjarma á ykkur refsibónusinn
það er, - það er allur munurinn.

Stæltur er skrokkur þinn, djöfull sljór hugurinn
stæltur er skrokkur þinn, djöfull sljór hugurinn
stæltur er skrokkur þinn, djöfull sljór hugurinn.